Einar Daði er rúmliggjandi í óvissu

Einar Daði Lárusson
Einar Daði Lárusson mbl.is/Eggert

Óvissa ríkir um hvort Einar Daði Lárusson taki þátt í sjöþrautarkeppni Evrópumeistaramótsins í frjálsíþróttum á morgun. Hann veiktist eftir komu íslenska landsliðshópsins til Prag í fyrrakvöld og var rúmliggjandi með hita í allan gærdag.

Eftir því sem næst verður komist var heilsa Einars Daða verri í morgun en í gær. Þar af leiðandi er útlitið ekki bjart um að hann taki þátt í sjöþrautarkeppninni sem hefst á morgun og lýkur á sunnudag. 

Útlitið er ekki gott.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert