Fanney setti nýtt heimsmet

Fanney Hauksdóttir heimsmeistari í bekkpressu.
Fanney Hauksdóttir heimsmeistari í bekkpressu. mbl.is/Golli

Kraftlyftingakonan Fanney Hauksdóttir úr Gróttu varði í morgun heimsmeistaratitil sinn í bekkpressu á heimsmeistaramóti unglinga í Svíþjóð í þeirri grein þegar hún lyfti heilum 145,5 kílóum en um er að ræða nýtt heimsmet.

Besti árangur Fannýjar til þessa var 135 kg og var hún talin sigurstranglegust á mótinu og því stóð hún sannarlega undir væntingum en Fanney keppir í -63 kg flokki.

Með Fanneyju í Svíþjóð er einnig Viktor Ben Gestsson en hann keppir í sinni grein kl. 11 í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert