Cancellara í gulu treyjunni á morgun

Þjóðverjinn Andre Greipel fagnar árangri sínum í dag.
Þjóðverjinn Andre Greipel fagnar árangri sínum í dag. mbl.is / AFP

Öðrum degi Frakklandshjólreiðana var að ljúka rétt í þessu en leggur dagsins var frá Utrecht til Zeeland.

Þjoðverjinn Andre Greipel hjólaði á besta tímanum í leggi dagsins.

Það er hins vegar Svisslendingurinn Fabian Cancellara sem er með besta samanlagða árangurinn í keppninni og verður því í gulu treyjunni þegar keppni hefst á morgun.

Mark Simon Cavendish sem fæddist á eyjunni Mön en keppir fyrir Bretland og þótti sigurstranglegur fyrir keppnina var í fjórða sæti í dag og frammistaða hans til þessa hefur valdið vonbrigðum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert