Þórdís sló tvö met í sama hlaupi

Þórdís Eva Steinsdóttir á fullri ferð.
Þórdís Eva Steinsdóttir á fullri ferð. mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

Þórdís Eva Steinsdóttir úr FH setti tvö aldursflokkamet í 300 metra hlaupi þegar hún sigraði í greininni í flokki 15 ára stúlkna á Gautaborgarleikunum í frjálsíþróttum í dag á 39,39 sekúndum.

Þessi árangur Þórdísar er met í bæði 15 ára og 16-17 ára flokkum og hún bætti í eldri flokknum 35 ára gamalt met Helgu Halldórsdóttur úr KR. Þórdís á nú þriðja besta árangur íslenskrar konu í þessari grein. Hún sigraði einnig í 300 m grindahlaupi í 15 ára flokki á mótinu og fékk silfur í 80 metra hlaupi.

Ragúel Pino Alexandersson úr UFA setti piltamet í flokki 14 ára í dag þegar hann hljóp á tímanum 39,29 sek og bætti 34 ára gamalt piltamet Viggós Þóris Þórissonar úr FH um rúma 2/10 úr sekúndu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert