Sex valin frá hverju Norðurlandi til Akraness

Nordic Camp æfingabúðirnar standa fram á sunnudag.
Nordic Camp æfingabúðirnar standa fram á sunnudag. Sportmyndir.is

Nordic Camp æfingabúðirnar í badminton hefjast á Akranesi á morgun, miðvikudag. Þátttakendur koma frá öllum Norðurlöndum en sex eru valdir frá hverju Norðurlandi til að taka þátt í búðunum, allir úr aldurshópi fimmtán ára og yngri.

Íslensku þátttakendurnir eru Andri Broddason TBR, Brynjar Már Ellertsson ÍA, Magnús Daði Eyjólfsson KR, Andrea Nilsdóttir TBR, Erna Katrín Pétursdóttir TBR og Halla María Gústavsdóttir BH. Þjálfarar frá öllum löndunum taka þátt í þjálfaranámskeiði sem fer fram meðfram búðunum. Fyrir Íslands hönd taka þátt Hrund Guðmundsdóttir Hamri, Irena Jónsdóttir ÍA og Þorkell Ingi Eriksson TBR.

Yfirþjálfari búðanna er James Barclay frá Englandi. en dagskráin er stíf og æft frá klukkan 9 á morgnanna til 21:30 á kvöldin með matarhléum inn á milli. Búðirnar standa fram á sunnudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert