Sergey Shubenkov bætti landsmetið

Sergey Shubenkov er hér í miðju hlaupi og skömmu siðar …
Sergey Shubenkov er hér í miðju hlaupi og skömmu siðar var hann orðinn heimsmeistari. AFP

Rússinn Sergey Shubenkov bar rétt í þessu sigur úr býtum í 110 metra grindarhlaupi á heimsmeistaramótinu í Peking. Þetta eru önnur gullverðlaun Rússa á leikunum til þessa.

Jamaíkumaðurinn Hansle Parchment varð annar í hlaupinu og Bandaríkjamaðurinn Aries Merritt þriðji.  

Sergey Shubenkov bætti rússneska landsmetið í hlaupinu með því að hlaupa á 12,98 sekúndum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert