Williams náði góðum endaspretti

Danielle Williams við endamarkið í 110 metra grindarhlaupinu í dag.
Danielle Williams við endamarkið í 110 metra grindarhlaupinu í dag. AFP

Jamaíska hlaupakonan Danielle Williams varð rétt í þessu heimsmeistari í 110 metra grindarhlaupi kvenna. Williams hljóp á 12,57 sem er persónulegt met hjá henni.

Þjóðverjinn Cindy Roleder varð í öðru sæti einungis tveimur sekúndubrotum á eftir Williams.

Bronsið féll svo í skaut Hvít-Rússans Alina Talay sem bætti landsmetið í hlaupinu.

Ríkjandi heimsmeistari í greininni, Bandaríkjamaðurinn Brianna Rollins hóf hlaupið á að hlaupa niður grind og náði sér aldrei almennilega á strik eftir það og hafnaði að endingu í fjórða sæti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert