Kári kominn í aðalkeppnina

Kári Gunnarsson er kominn í aðalkeppni alþjóðlegs móts í Gvatemala.
Kári Gunnarsson er kominn í aðalkeppni alþjóðlegs móts í Gvatemala. mbl.is/Golli

Kári Gunnarsson, Íslandsmeistari í badminton, vann í dag Christopher Alexander Martinez Salvador frá Gvatemala í forkeppni alþjóðlegs móts í Gvatemala. Sigur Kára var öruggur í tveimur settum, 21:12, 21:11. 

Kári gerði sér lítið fyrir og vann annan heimamann í næstu umferð á eftir, 21:10, 19:21 og 22:20,  og hefur þar með tryggt sér sæti í aðalkeppni mótsins á morgun. Þar mætir hann Ísraelsmanninum, Misha Silberman, sem er talinn með annar sterkasti badmintonmaður mótsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert