Heitt í hamsi norðan heiða

Ragnheiður Kr. Sigurðardóttir og Viktor Samúelsson.
Ragnheiður Kr. Sigurðardóttir og Viktor Samúelsson.

Heitt var á Akureyri í dag, bæði úti og í húsakynnum KFA þar sem Íslandsmeistaramótið í kraftlyftingum í opnum flokki fór fram.

Stigameistari kvenna var Helga Guðmundsdóttir, LFH, sem átti mjög gott mót, fékk 27 hvít ljós á seríuna 187,5–130–182,5 samtals 500 kg í -72 kg flokki.

Arnhildur Anna Árnadóttir, Gróttu, sigraði í flokknum með 520 kg sem er nýtt Íslandsmet, en Helga var mun léttari og stóð þess vegna með pálmann í höndunum.

Stigameistari karla var heimamaðurinn Viktor Samúelsson sem náði því langþráða markmiði að klára 1000 kg samanlagt.

Lið KFA urðu stigahæst bæði í karla- og kvennaflokki.

Borghildur Erlingsdóttir, formaður KRAFT, afhenti verðlaun í kvennaflokkum. Svo skemmtilega vildi til að Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson, stofnandi KFA, var á mótinu og fékk hann heiðurinn af að afhenda verðlaun í karlaflokkum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert