Ingi og Ásgerður Íslandsmeistarar

Ingi Rúnar Kristinsson
Ingi Rúnar Kristinsson mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Ingi Rúnar Kristinsson úr Breiðabliki varð í dag Íslandsmeistari í tugþraut og Ásgerður Jana Ágústsdóttir úr UFA í sjöþraut en MÍ í fjölþraut lauk á Selfossi í dag. 

Ingi hlaut 6.868 stig í tugþrautinni og Ásgerður 4.854 stig í sjöþrautinni. Irma Gunnarsdóttir úr Breiðabliki var með forystu eftir fyrri keppnisdaginn en Ásgerður komst fram úr henni á síðari keppnisdeginum í dag. 

Fleiri úrslit má finna á heimasíðu Frjálsíþróttasambandsins. 

Ásgerður Jana Ágústsdóttir
Ásgerður Jana Ágústsdóttir mbl.is/Thorir O. Tryggvason.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert