Arna sigraði með yfirburðum í Svíþjóð

Arna Stefanía Guðmundsdóttir brosmild á Akureyri um síðustu helgi.
Arna Stefanía Guðmundsdóttir brosmild á Akureyri um síðustu helgi. Ljósmynd/Páll Jóhannesson

Arna Stefanía Guðmundsdóttir, hlaupari úr FH, sigraði með yfirburðum í 400 metra grindahlaupi á móti sem fram fór í Karlstad í Svíþjóð í kvöld. Arna Stefanía hljóp á tímanum 58,16 sekúndum. Hún hefur hlaupið best á 57,14 sekúndum, en tíminn hennar í kvöld er hennar sjötti besti.

Arna Stef­an­ía er á miklu skriði þessa dagana, en hún var sig­ur­sæl­asti kepp­and­inn á Meist­ara­móti Íslands í frjálsíþrótt­um á Akureyri um síðustu helgi þar sem hún nældi sér í fimm gull­verðlaun­. Arna Stefanía sigraði í 400 metra hlaupi, 100 metra  grinda­hlaupi, 200 metra hlaupi og var svo í sigurliði í tveimur boðhlaupssveitum FH.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert