Ásdís Hjálmsdóttir, spjótkastari úr Ármanni, verður á meðal keppenda á sterku móti í Berlín hinn 3. september næstkomandi.
Á Facebook-síðu sinni segir Ásdís að mótið verði hennar síðasta á þessu ári. Mótið heitir ISTAF og er hluti af World Challenge-mótaröðinni sem er sú næststerkasta í heiminum á eftir Demantamótaröðinni.
Mótið verður haldið á hinum fræga Ólympíuleikvangi í Berlín þar sem leikarnir umtöluðu árið 1936 voru haldnir.