Kári og Sigrún unnu fyrsta stigamótið

Verðlaunahafarnir í meistaraflokki kvenna.
Verðlaunahafarnir í meistaraflokki kvenna.

Kári Mímisson og Sigrún Ebba Urbancic Tómasdóttir, bæði úr KR, sigruðu í meistaraflokki á stigamóti KR í borðtennis, sem fram fór í Íþróttahúsi Hagaskóla á sunnudaginn.

Birgir Ívarsson, BH og Stella Karen Kristjánsdóttir, Víkingur sigruðu í 1. flokki og Karl A. Claesson, KR og Kristín Ingibjörg Magnúsdóttir, KR lönduðu sigri í 2. flokki. Þetta var fyrsta stigamót keppnistímabilsins og komu keppendur frá BH, HK, KR og Víkingi.

Úrslit í einstökum flokkum:

Meistaraflokkur karla

  1. Kári Mímisson, KR
  2. Sindri Þór Sigurðsson, Víkingur

3.-4. Magnús Jóhann Hjartarson, Víkingur
3.-4. Magnús Gauti Úlfarsson, BH

Kári vann Sindra 3-0 (11-8, 11-6, 11-9) í úrslitaleiknum. 

Meistaraflokkur kvenna

  1.  Sigrún Ebba Urbancic Tómasdóttir, KR
  2.  Stella Karen Kristjánsdóttir, Víkingur
  3.  Karitas Ármannsdóttir, KR

Sigrún tapaði ekki lotu og vann Stellu 3-0 (11-3, 11-2, 11-7) í þeirra innbyrðis leik.

1. flokkur karla

  1. Birgir Ívarsson, BH
  2.  Ísak Indriði Unnarsson, Víkingur

3.-4. Óskar Agnarsson, HK
3.-4. Karl Andersson Claesson, KR

Birgir, sem var stigahæsti keppandinn tapaði fyrir Óskari í riðlinum. Hann vann síðan alla sína keppinauta og lagði Ísak 3-1 (11-7, 11-6, 8-11, 11-7) í úrslitunum.

1. flokkur kvenna

  1.  Stella Karen Kristjánsdóttir, Víkingur
  2.  Guðrún Gestsdóttir, KR
  3.  Karitas Ármannsdóttir, KR

Leikmenn í 1. flokki og 2. flokki léku saman á mótinu, til að allar fengju fleiri leiki. Stella vann alla andstæðinga sína 3-0 og sigraði Guðrúnu 11-7, 11-5, 16-14 í þeirra innbyrðis leik.

 2. flokkur karla

  1. Karl Andersson Claesson, KR
  2. Piotr Zentara, Víkingur

3.-4. Jóhannes Kári Yngvason, KR
3.-4. Elvar Kjartansson, KR

Karl, sem var stigahæsti leikmaðurinn í flokknum, lagði Piotr 3-1 (12-10, 6-11, 11-4, 11-9) í úrslitum. Piotr er Pólverji, sem keppti á sínu fyrsta móti á Íslandi á þessu móti.

2. flokkur kvenna

  1.  Kristín Ingibjörg Magnúsdóttir,  KR
  2. Þuríður Þöll Bjarnadóttir, KR

Leikmenn í 1. flokki og 2. flokki léku saman á mótinu, eins og áður kom fram. Kristín vann Þuríði 3-0 (11-7, 11-4, 11-8) í úrslitaleiknum í 2. flokki.

Öll úrslit á mótinu.

Verðlaunahafarnir í meistaraflokki karla.
Verðlaunahafarnir í meistaraflokki karla.
Verðlaunahafarnir í 1. flokki kvenna.
Verðlaunahafarnir í 1. flokki kvenna.
Verðlaunahafarnir í 1. flokki karla.
Verðlaunahafarnir í 1. flokki karla.
Verðlaunahafarnir í 2. flokki kvenna.
Verðlaunahafarnir í 2. flokki kvenna.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert