Karla- og kvennasveit Íþróttabandalags Reykjanesbæjar hafa forystu að loknum fyrsta hluta af þremur í bikarkeppni Sundsambands Íslands sem hófst í Vatnaveröld í Reykjanesbæ í dag.
Fyrirkomulagið á bikarkeppninni er þannig að hvert félag sendir tvo sundmenn í hverja grein og má hver sundmaður synda í þremur greinum auk boðsunda. Hvert sund gefur svokölluð FINA-stig. Því skiptir máli að ná sem bestum tíma til að fá fleiri stig.
Staðan eftir fyrsta hluta er eftirfarandi:
1. deild kvenna:
Íþróttabandalag Reykjanesbæjar 5427 stig
Sundfélagið Ægir 5154 stig
Sundfélag Hafnarfjarðar 5096 stig
1. deild karla:
Íþróttabandalag Reykjanesbæjar 5457 stig
Sundfélag Hafnarfjarðar 5213 stig
UMSK 4612 stig
2. deild kvenna:
Íþróttabandalag Reykjanesbæjar 3708 stig
Sundfélag Hafnarfjarðar 3567 stig
Íþróttabandalag Reykjavíkur 3330 stig
2. deild karla:
Sundfélag Hafnarfjarðar 3166 stig
Íþróttabandalag Reykjavíkur 2770 stig
UMSK 440 stig