Náði 300 í Noregi

Jón Ingi Ragnarsson.
Jón Ingi Ragnarsson.

Keilumaðurinn Jón Ingi Ragnarsson úr KFR náði um helgina fullkomnum leik, 300 stigum, í annað sinn á ferlinum, en það gerði hann í leik með Cross BK í norsku 2. deildinni gegn Gokstad frá Sandefjord.

Þetta kemur fram á vef Keilusambands Íslands. Jón náði áður 300 í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð 9. maí árið 2009.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert