TBR Rokkstjörnur eru Íslandsmeistarar félagsliða í badminton eftir sigur á TBR Veggnum í úrslitaviðureign.
Arna Karen Jóhannsdóttir, Snjólaug Jóhannsdóttir, Kári Gunnarsson, Daníel Jóhannesson, Bjarki Stefánsson, Kjartan Pálson og Andri Árnason keppa fyrir Rokkstjörnurnar.
TBR/ÍA Öllarar urðu í þriðja sæti, Landsbyggðin/ÍA í fjórða og TBR Hleðsla varð í fimmta sæti.