Bjarni komst í undanúrslit

Bjarni Ottósson lýstur sigurvegari.
Bjarni Ottósson lýstur sigurvegari. Ljósmynd/Gunnar Jónatansson

Bjarni Ottósson úr Hnefaleikafélagi Reykjavíkur tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum á Íslandsmeistaramótinu í ólympískum hnefaleikum, í -75 kg flokki.

Hann sigraði Jóhann Friðrik úr Hnefaleikafélaginu Æsi eftir einróma ákvörðun dómara. Undanúrslit fara fram í Mjölniskastalanum, gömlu keiluhöllinni í Öskjuhlíð, á laugardaginn en úrslit ráðast síðan á sunnudagskvöldið.

Bjarni Ottósson og Jóhann Friðrik í bardaganum í kvöld.
Bjarni Ottósson og Jóhann Friðrik í bardaganum í kvöld. Ljósmynd/Gunnar Jónatansson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert