Elsa Guðrún í 67. sæti á HM

Elsa Guðrún Jónsdóttir.
Elsa Guðrún Jónsdóttir. Ljósmynd/Einar Þór Bjarnason

Elsa Guðrún Jónsdóttir hafnaði í 67. sæti í 10 kílómetra göngu með hefðbundinni aðferð á heimsmeistaramótinu í norrænum greinum í Lathi í Finnlandi í dag.

Elsa Guðrún, sem var með rásnúmerið 70, gekk 10 kílómetrana á 32:41,4 mínútum og varð 7,16 mínútum á eftir sigurvegaranum en 71 keppandi tók þátt í göngunni.

Hin norska Marit Björgen varð heimsmeistari en hún kom í mark á 24:25,9 mínútum og varð 41 sekúndu á undan Charlotte Karla frá Svíþjóð og 55 sekúndum á undan löndu sinni Astrid Uhrenholdt Jacobsen.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert