Fimm Íslendingar á skoska meistaramótinu

Þeir Ísak Óli Traustason, Ingi Rúnar Kristinsson, Tristan Freyr Jónsson …
Þeir Ísak Óli Traustason, Ingi Rúnar Kristinsson, Tristan Freyr Jónsson og Ari Sigþór Eiríksson. Ljósmynd/FRÍ

Um helgina taka fimm Íslendingar þátt á skoska meistaramótinu í fjölþrautum innanhúss. Mótið fer fram í Glasgow á Emirates Arena.

María Rún Gunnlaugsdóttir úr FH er eini kvenmaðurinn í hópnum. Hún keppir í fimmtarþraut, en hún varð Íslandsmeistari í fimmtarþraut í janúar.

Fjórir karlmenn keppa í sjöþraut. Þeir eru Tristan Freyr Jónsson úr ÍR, Ingi Rúnar Kristinsson úr Breiðabliki, Ísak Óli Traustason úr UMSS og Ari Sigþór Eiríksson úr Breiðabliki. Þessir kappar röðuðu sér í fjögur efstu sætin í karlaflokki á Íslandsmeistaramótinu sem fram fór í janúar.

Keppni hefst klukkan 10 báða dagana, lýkur um kl. 16 á laugardeginum og um kl. 17:30 á sunnudeginum. HÉR má nálgast heimasíðu mótsins og HÉR er hægt að fylgjast með úrslitum

María Rún Gunnlaugsdóttir.
María Rún Gunnlaugsdóttir. Ljósmynd/FRÍ
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert