Bardaginn hennar Sunnu sá besti

Sunna Rannveig Davíðsdóttir.
Sunna Rannveig Davíðsdóttir. Ljósmynd/Sóllilja Baltasarsdóttir

Sunna Rannveig Davíðsdóttir hafði betur gegn Mallory Martin á Invicta FC 22 kvöldinu í Kansas í Bandaríkjunum í nótt. Bardaginn var mjög spennandi og skemmtilegur og var hann að lokum valinn besti bardagi kvöldsins. 

Eftir þrjár lotur dæmdu allir þrír dómarar bardagans Sunnu sigur, en hann var ansi naumur. Þriðja lotan var algjör úrslitalota og þar hafði Sunna betur. 

Sunna fær um 1.000 dollara í verðlaunafé fyrir vikið, eða um 110.000 kr. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert