Spretthlauparinn Kolbeinn Höður Gunnarsson gerði það gott á Joe Walker Invitational-mótinu í Mississippi í Bandaríkjunum um helgina.
Kolbeinn varð í þriðja sæti í 200 metra hlaupinu og var nálægt því að bæta Íslandsmet sitt. Hann kom í mark á 20,99 sekúndum og var aðeins 2/100 frá Íslandsmetinu sem hann setti um síðustu helgi.
Í 100 metra hlaupinu var hann óheppinn en hann var í eina riðlinum sem fékk mótvind. Tími Kolbeins í hlaupinu var 10,90 sekúndur og hafnaði hann í sjöunda sæti.