Sara Sigmunds efst á heimsvísu

Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir.
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Crossfit-stjarnan Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir gerði sér lítið fyrir og varð efst á heimsvísu á opna crossfit-mótinu sem fram hefur farið síðustu vikur. Um er að ræða 150 þúsund keppendur sem taka þátt.

Keppendurnir hafa fimm vikur til þess að spreyta sig á sömu fimm þrautunum. Sara háði meðal annars einvígi við Katrínu Tönju Davíðsdóttir á dögunum og þrátt fyrir að hafa tapað því var hún samanlagt efst á heimsvísu.

Næsti íslenski keppandinn á eftir henni var Annie Mist Þórisdóttir, sem varð 7., á eftir henni varð Þuríður Erla Helgadóttir og Katrín Tanja varð svo 10. á heimsvísu. Heildarúrslit má sjá HÉR.

Hér má sjá efstu tíu keppendurna og þar á meðal …
Hér má sjá efstu tíu keppendurna og þar á meðal eru þrjár íslenskar konur. Ljósmynd/Skjáskot
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert