Manchester United í leit að miðjumanni

José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, er í leit að miðjumanni.
José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, er í leit að miðjumanni. AFP

José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur hug á því að styrkja miðsvæðið hjá liðinu fyrir næsta keppnistímabil ef marka má fréttir breskra fjölmiðla.

Mourinho er í leit að varnarsinnuðum miðjumanni þessa dagana og hafa nokkur nöfn verið nefnd til sögunnar í þeim efnum.

Þannig eru Brasilíumaðurinn Fabinho sem leikur með Monaco og Slóveninn Nemanja Matic sem spilar fyrir Chelsea orðaðir við komu til Manchester United í frétt Sky Sports.

Þá segir í sömu frétt Sky Sports að Barcelona hafi hafnað rúmlega 30 milljóna punda tilboði Manchester United í Portúgalann André Gomes.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert