Tiana Ósk í 20. sæti

Tiana Ósk Whitworth.
Tiana Ósk Whitworth. Ljósmynd/FRÍ

Tiana Ósk Whitworth úr ÍR var rétt í þessu að ljúka 100 metra hlaupi sínu í undanúrslitum á Evrópumeistaramóti 16-19 ára í frjálsum íþróttum á Ítalíu.

Tiana kom í mark á 12,03 sekúndum og hafnaði í 7. sæti af átta keppendum. Í heildina varð hún í 20. sæti af þeim 24 keppendum sem kepptu í undanúrslitunum.

Á morgun keppir Tiana í 200 metra hlaupi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert