Guðbjörg Jóna hafnaði í fimmta sæti

Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir hafnaði í fimmta sæti í 200 metra …
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir hafnaði í fimmta sæti í 200 metra hlaupi. Ljósmynd/ÍSÍ

Fjórða keppnisdegi er lokið hjá okkar fólki á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar sem fram fer í Györ í Ungverjalandi.

Í sundinu keppti Viktor Forafonov í undanrásum 100 metra skriðsunds. Þar synti hann á tímanum 56,08 sekúndum sem skilaði honum í 54. sæti. Patrik Viggó Vilbergsson keppti í undanrásum í 400 metra fjórsundi og synti hann á 4:54,03 mínútum og varð í 27. sæti. Strákarnir voru nálægt sínum besta árangri en tókst ekki að tryggja sig áfram í milliriðla.

Í spjótkasti kastaði Helga Margrét Óskarsdóttir 37,84 og varð 9. í A-kasthópi. Í 1.500 metra hlaupi stúlkna hljóp Iðunn Björg Arnaldsdóttir á tímanum 4.56,49 og varð 10. í sínum riðli. Stúlkurnar voru báðar nálægt sínum besta árangri en tókst ekki að tryggja sig áfram í keppninni.

Í úrslitahlaupi stúlkna í 200 metra hlaupi bætti Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir sinn besta árangur þegar hún hljóp á 24,06 og endaði í fimmta sæti. Því miður var vindur örlítið yfir leyfilegum mörkum.

Á morgun er komið að næstsíðasta keppnisdegi. Brynjólfur Óli Karlsson keppir í 200 m baksundi og Patrik Viggó Vilbergsson í 1.500 m skriðsundi. Í frjálsum íþróttum keppir Helga Margrét Haraldsdóttir í 100 m grindahlaupi auk þess sem boðhlaupssveitin (Helga Margrét Óskarsdóttir, Birna Kristín Kristjánsdóttir, Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir og Helga Margrét Haraldsdóttir) keppir í 4x100 m boðhlaupi stúlkna. Íslenska drengjaliðið í handknattleik mætir svo Dönum í leik sem sker úr um hvort liðið spilar um fimmta eða sjöunda sæti á mótinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert