Tap gegn Dönum og Ísland leikur um 7. sæti

Brynjólfur Óli Karlsson í syndir í dag.
Brynjólfur Óli Karlsson í syndir í dag. Ljósmynd/ÍSÍ

Þá er næstsíðasta keppnisdegi á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar lokið. Í dag áttum við keppendur í sundi, frjálsum íþróttum og handknattleik.

Keppni dagsins hófst með 200 metra baksundi hjá Brynjólfi Óla Karlssyni. Brynjólfur synti á tímanum 2.12,31 mínútum og endaði í 29. sæti. Í 200 metra flugsundi synti Viktor Forafonov á tímanum 2.13,49 mínútum sem skilaði honum í 27. sæti. Í 1.500 metra skriðsundi synti Patrik Viggó Vilbergsson á tímanum 16:55,17 mínútum. Þar með hafa drengirnir í sundinu lokið keppni.

Í frjálsum íþróttum keppti Helga Margrét Haraldsdóttir í 100 metra grindahlaupi. Þar hljóp hún á tímanum 14,54 sekúndum og varð í 6. sæti í sínum riðli og komst því ekki áfram. Í undanriðlum 4x100 metra boðhlaups stúlkna hlupu stúlkurnar á tímanum 48.32 sekúndur og komust ekki í úrslit. Boðhlaupssveitina skipuðu þær Helga Margrét Óskarsdóttir, Birna Kristín Kristjánsdóttir, Helga Margrét Haraldsdóttir og Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir.

Í handknattleik drengja léku okkar drengir við Dani. Lokaniðurstaða leiksins varð 29:26 Danmörk í vil sem þýðir að á morgun munu drengirnir leika um 7. sæti á mótinu við heimamenn Ungverja kl. 9.40 í fyrramálið að staðartíma (7.40 að íslenskum tíma).

Handknattleiksliðið gerir sig klár fyrir leikinn gegn Dönum.
Handknattleiksliðið gerir sig klár fyrir leikinn gegn Dönum. Ljósmynd/ÍSÍ
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert