Eiður og Sigríður unnu Atlamótið

Sigríður Árnadóttir
Sigríður Árnadóttir Ljósmynd/Sportmyndir.is

Atlamót, ÍA, í badminton fór fram um helgina. Mótið er innan mótaraðar, BSÍ, og hefur því stig á styrkleikalista. Í tvíliða- og tvenndarleik var keppt í riðlum en í einliðaleik var keppt í riðlum og svo útsláttarkeppni.

Í meistaraflokki vann Eiður Ísak Broddason, TBR, Sigurð Sverri Gunnarsson, TBR, í úrslitum einliðaleiks karla 21:17 og 21:17. Í einliðaleik kvenna var keppt í riðli. Sigríður Árnadóttir stóð uppi sem sigurvegari. Í tvíliðaleik karla sigruðu Kristófer Darri Finnsson og Davíð Bjarni Björnsson, TBR. Ekki var keppt í tvíliðaleik kvenna í meistaraflokki. Í tvenndarleik unnu Daníel Jóhannesson og Sigríður Árnadóttir, TBR.

Í A-flokki var spilað í úrsláttarkeppni eftir riðlana. Í A-flokki sigraði Elís Þór Dansson, TBR, í einliðaleik karla. Hann vann í úrslitum Aron Óttarsson, TBR, eftir oddalotu 21:11, 12:21, 21:14. Í einliðaleik kvenna vann Katrín Vala Einarsdóttir, BH, sem vann Höllu Maríu Gústafsdóttur, BH,, 21:18, 22:20. Í tvíliðaleik karla unnu Aron Óttarsson og Guðjón Helgi Auðunsson, TBR. Þeir unnu Elís Þór Dansson og Símon Orra Jóhannsson, TBR, í úrslitum 21:16, 21:13. Tvíliðaleik kvenna unnu Irena Ásdís Óskarsdóttir og Sólrún Anna Ingvarsdóttir, BH, en þær unnu Önnu Alexöndru Petersen og Júlíönu Karitas Jóhannsdóttur, TBR, í úrslitum 21:16, 21:12. Í tvenndarleik sigruðu Elís Þór Dansson og Margrét Dís Stefánsdóttir, TBR. Þau unnu Brynjar Má Ellertsson, ÍA, og Unu Hrund Örvar, BH, 21:14 og 21:14.

Í B-flokki vann Davíð Örn Harðarson, ÍA, einliðaleik karla. Hann sigraði í úrslitum Tómas Sigurðarson, TBR 21:16, 21:17. Ekki fór fram keppni í einliðaleik kvenna í B-flokki né heldur í tvíliðaleik kvenna. Tvíliðaleik karla unnu Egill Magnússon og Stefán Alfreð Stefánsson, Aftureldingu. Ekki var keppt í tvíliðaleik kvenna í B-flokki. Í tvenndarleik unnu Kristján Kristjánsson og Rakel Rut Kristjánsdóttir, BH, sem sigruðu í úrslitum Gústav Nilsson og Önnu Alexöndru Petersen, TBR 21:15, 21:16.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert