Arnór Þór næst markahæstur

Arnór Þór Gunnarsson hefur verið iðinn við kolann hjá Bergischer …
Arnór Þór Gunnarsson hefur verið iðinn við kolann hjá Bergischer í vetur. mbl.is/Kristinn Magnússon

Arnór Þór Gunnarsson, landsliðsmaður í handbolta og leikmaður Bergischer, er í öðru sæti yfir markahæstu leikmenn í þýsku B-deildinni í handknattleik karla. Arnór Þór hefur skorað 73 mörk, þremur mörkum færri en Savvas Savvas, leikmaður Hildesheim.

Mörkin 73 hefur Arnór skorað í níu leikjum sem þýðir að hann hefur skorað 8,1 mark að meðaltali en Bergischer er í toppsæti deildarinnar, hefur unnið alla níu leiki sína. Liðið féll úr A-deildinni á síðustu leiktíð.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert