Glover samdi við FH-inga

Marjani Hing Glover er nýjasti leikmaður kvennaliðs FH í knattspyrnu.
Marjani Hing Glover er nýjasti leikmaður kvennaliðs FH í knattspyrnu.

Bandaríska knattspyrnukonan Marjani Hing Glover er gengin í raðir FH, en hún skrifaði í gær undir tveggja ára samning við Hafnarfjarðarliðið. Glover, sem er 28 ára gamall framherji, lék með Haukum á síðustu leiktíð þar sem hún skoraði 7 mörk í 18 leikjum með liðinu.

Þar áður lék Glover með Fylki og Grindavík. Samtals hefur hún spilað 62 leiki með liðunum þremur og hefur í þeim skorað 32 mörk.

„Það er gott að vera komin til liðs við FH og fá áfram tækifæri til þess að spila í Pepsi-deildinni. Mér líst vel á umgjörðina og metnaðinn hjá FH,“ sagði Glover á vef FH.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert