Anna og Raj stóðu uppi sem sigurvegarar

Raj K. Bonifacius og Anna Soffía Grönholm.
Raj K. Bonifacius og Anna Soffía Grönholm. Ljósmynd/TSÍ

Anna Soffía Grönholm úr Tennisfélagi Kópavogs og Raj K. Bonifacius úr tennisdeild Víkings báru sigur úr býtum í einliðaleik á þriðja stórmóti Tennissambands Íslands sem fram fór í Tennishöllinni í Kópavogi í gær. 

Anna Soffía hafði betur gegn Soffíu Sóley Jónasdóttur úr TFK, 6:4 og 6:2 í úrslitum, og Raj hafði betur gegn Ólafi Páli Einarssyni, líka úr Víkingi, 6:1 og 6:1. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert