Stíflan brast loksins hjá Suárez

Luis Suárez fagnar langþráðu marki sínu fyrir Barcelona.
Luis Suárez fagnar langþráðu marki sínu fyrir Barcelona. AFP

Luis Suárez skoraði tvö marka Barcelona þegar liðið vann þægilegan 3:0-sigur gegn Leganés í 12. umferð spænsku efstu deildarinnar í knattspyrnu karla í dag.

Fyrra mark Suárez var fyrsta mark hans fyrir Barcelona í rúman mánuð, en hann hafði leikið sex leiki án þess að finna netmöskva andstæðinganna áður kom að leiknum í dag. Paulinho bætti síðan þriðja marki Barcelona við í uppbótartíma leiksins.

Barcelona hefur 34 stig eftir þennan sigur og situr í toppsæti deildarinnar. Barcelona hefur sjö stiga forskot á Valencia sem á þó leik til góða á topplið deildarinnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert