Dregið hefur verið í riðla fyrir Evrópukeppni karla- og kvennalandsliða í badminton sem fer fram í Kazan í Rússlandi dagana 13.–18. febrúar 2018.
Íslenska karlalandsliðið dróst í þriðja riðil með Þýskalandi, Lúxemborg og Aserbaídsjan. Það má segja að liðið sé heppið með riðil. Karlalandsliðið hefur einu sinni mætt Lúxemborg, árið 2012, og vann þá 3:2. Við höfum ekki mætt Aserbaídsjan eða Þýskalandi, sem er raðað inn í riðilinn. Alls taka 29 þjóðir þátt í Evrópukeppni karlalandsliða.
Íslenska kvennalandsliðið dróst í riðil 1 með Danmörku, Svíþjóð og Ísrael. Það er öllu erfiðari riðill. Við höfum einu sinni unnið Svíþjóð, árið 2010 en þá unnum vann kvennalandsliðið 4:1. Karlalandsliðið hefur tapað fyrir Svíum þrisvar og kvennalandsliðið einu sinni, árið 1984. Við höfum aldrei unnið Dani. Við höfum mætt Ísrael þrisvar, einu sinni með kvennalandslið okkar og tvisvar í landsleik blandaðs liðs og unnið í öll skiptin, árin 1994 4:1, 2011 4:1 og 2015 3:1. Alls taka 24 þjóðir þátt í Evrópukeppni kvennalandsliða.
Landsliðin skipa:
Daníel Jóhannesson, Davíð Bjarni Björnsson, Kári Gunnarsson og Kristófer Darri Finnsson.
Arna Karen Jóhannsdóttir, Margrét Jóhannsdóttir, Sigríður Árnadóttir og Þórunn Eylands.
Þau koma öll úr TBR.