Oscar Pistorius, gullverðlaunahafi á þremur ólympíumótum fatlaðra og dæmdur morðingi, mun hafa átt í slagsmálum í fangelsi í Suður-Afríku þar sem hann afplánar 13 ára fangelsisdóm sem hann fékk fyrir að myrða kærustu sína, Reevu Steenkamp.
Pistorius særðist eftir átök við annan fanga en það mun hafa angrað aðra fanga hve lengi Pistorius talaði í síma sem ætlaður er öllum föngum.
„Oscar Pistorius meiddist eftir meint átök við annan fanga vegna ósættis varðandi almenningssíma í Attridgeville-fangelsinu þar sem þeir afplána báðir dóm,“ sagði talsmaður fangelsisyfirvalda í Suður-Afríku.
Pistorius myrti Steenkamp á Valentínusardaginn árið 2013 með því að skjóta hana fjórum sinnum með skammbyssu í gegnum klósetthurð. Kvaðst hann hafa talið að um innbrotsþjóf væri að ræða.
Í síðasta mánuði var dómur yfir Pistorius þyngdur í 13 ár eftir að fyrri dómi, sem var 6 ár, hafði verið áfrýjað.