Kristinn í 41. sæti í Kaupmannahöfn

Kristinn Þórarinsson
Kristinn Þórarinsson mbl.is/Ómar Óskarsson

Sundmaðurinn Kristinn Þórarinsson úr Fjölni varð sjöundi í undanrásarriðli sínum í fjórsundi á Evrópumótinu í 25 metra laug sem haldið er í Royal Arena í Kaupmannahöfn.

Kristinn synti á tímanum 2:01,95 mínútum en hann var með tímann 2:00,34 skráðan fyrir mótið. 16 keppendur fóru áfram en Kristinn var í 41. sæti af 51 keppanda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert