Snæfríður og Kristinn ekki í undanúrslit

Kristinn Þórarinsson.
Kristinn Þórarinsson. mbl.is/Ómar Óskarsson

Snæfríður Sól Jórunnardóttir hafnaði í 32. sæti af 42 keppendum í 200 metra skriðsundi á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu í 25 metra laug sem haldið er í Royal Ar­ena í Kaup­manna­höfn. 

Snæfríður synti á tímanum 2.01,05 í undanrásum en hún varð síðust í sínum riðli og komst ekki áfram í undanúrslit sem fara fram síðar í dag.

Kristinn Þórarinsson úr Fjölni vann sinn riðil í undanrásum í 100 metra fjórsundi. Hann synti á 55,12 sekúndum og hafnaði í 30. sæti af 48 keppendum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert