Ísold Fönn vann til gullverðlauna

Ísold Fönn Vilhjálmsdóttir fyrir miðju á verðlaunapallinum.
Ísold Fönn Vilhjálmsdóttir fyrir miðju á verðlaunapallinum. Ljósmynd/Skautasamband Íslands

Ísold Fönn Vilhjálmsdóttir keppti fyrir Íslands hönd í keppnisflokkun Advanced Novice á listskautum á Grand Prix móti sem haldið var í Bratislavaí Slóvakíu um helgina.

Ísold Fönn gerði sér lítið fyrir og nældi sér í gullverðlaun. Hún var með 93.39 heildarstig úr báðum prógrömmum.

Í þessum keppnisflokki mættu 33 stúlkur til keppni frá 10 löndum. Mótið er stórt og margir sterkir keppendur. Keppt er eftir reglum ISU (Alþjóða skautasambandsins) en Advanced Novice er keppnisflokkur fyrir yngstu keppendur sem keppa undir þeirra merkjum.

Þetta er í fyrsta sinn í sögu listskauta á Íslandi að íslenskur keppandi vinnur gullverðlaun á erlendu ISU móti.

Ísold Fönn er nýkrýndur Íslandsmeistari í Advanced Novice þar sem að hún setti einnig íslenskt stigamet.

Á Íslandsmótinu var hún fyrsti íslenski skautarinn til þess að lenda hreinu þreföldu Toeloop (3T). Á Grand Prix mótinu lenti hún þreföldu Toeloop í samsteningu með tvöföldu Toeloop (3T+2T). Þar er hún fyrsti íslenski skautarinn til að lenda hreinu þreföldu stökki í samsetningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert