KA-menn eru deildarmeistarar

Karlalið KA í blaki eftir að deildarmeistaratitilinn var í höfn …
Karlalið KA í blaki eftir að deildarmeistaratitilinn var í höfn í dag. Ljósmynd/KA

KA-menn tryggðu sér deildarmeistaratitilinn í Mizuno-deild karla í blaki eftir sigur á HK fyrir norðan í dag, 3:0.

KA vann fyrstu hrinuna 25:21, aðra hrinuna 25:22 og þá þriðju eftir upphækkun 27:25. Quentin Moore var stigahæstur hjá KA með 24 stig en Gary House var stigahæstur hjá HK með 12 stig.

Þetta er sjötti deildarmeistaratitill KA frá upphafi og sá fyrsti síðan árið 2011. Liðin mætast aftur á morgun í lokaleik deildarinnar en fyrir hann er KA með 38 stig, HK er með 29 stig, Þróttur Nes 21 stig, Stjarnan 18 stig og Afturelding 11 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert