Fimmtu gullverðlaun Fourcade

Frakkarnir Marie Dorin Habert, Anais Bescond, Martin Fourcade og Simon …
Frakkarnir Marie Dorin Habert, Anais Bescond, Martin Fourcade og Simon Desthieux fagna gullverðlaunum í dag. AFP

Frakkinn Martin Fourcade vann sín fimmtu gullverðlaun á Vetrarólympíuleikum þegar Frakkar tryggðu sér sigurinn blandaðri boðgöngu í skíðaskotfimi í Pyeongchang í Suður-Kór­eu í dag.

Fourcade er þar með orðinn sigursælasti franski íþróttamaðurinn í sögu Ólympíuleikanna. Þetta voru hans þriðju gullverðlaun í Pyeongchang og þá vann hann til tvennra gullverðlauna á Vetrarólympíuleikunum í Sochi í Rússlandi fyrir fjórum árum.

Norðmenn unnu til silfurverðlauna og Ítalir til bronsverðlauna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert