Heimamenn atkvæðamiklir í skautaati

Lee Seung-hoon fagnar sigrinum í dag.
Lee Seung-hoon fagnar sigrinum í dag. AFP

Suður-Kóreumaðurinn Lee Seung-hoon vann til gullverðlauna fyrir heimamenn í skautaati karla á Vetrarólympíuleikunum í Pyeongchang í dag.

Bart Swings frá Belgíu varð í 2. sæti og Hollendingurinn Koen Verweij í 3. sæti.

Í kvennaflokki var það Nana Takagi frá Japan sem vann en skammt á eftir henni var Bo-Reum Kim frá Suður-Kóreu. Irene Schouten frá Hollandi varð í 3. sæti.

Nana Takagi vann í kvennaflokki.
Nana Takagi vann í kvennaflokki. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert