Afturelding svaraði KA

Afturelding jafnaði einvígið.
Afturelding jafnaði einvígið. mbl.is/Ófeigur

Afturelding jafnaði undanúrslitaeinvígi sitt gegn KA í Mizuno-deild karla í blaki í 1:1 með 3:1-sigri í Mosfellsbæ í dag. KA vann fyrstu hrinuna en Afturelding næstu þrjár og leikinn í leiðinni.

KA vann fyrstu hrinuna 25:15, en Afturelding svaraði með 25:20, 25:20 og 25:19-sigrum í næstu þremur hrinum. 

Radoslaw Rybak skoraði 23 stig fyrir Aftureldingu og Quentin Moore var með 21 fyrir KA. Vinna þar þrjá leiki til að fara í úrslit. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert