Guðlaug átjánda í Las Palmas

Guðlaug Edda Hannesdóttir tók við viðurkenningu sem þríþrautarkona ársins 2017.
Guðlaug Edda Hannesdóttir tók við viðurkenningu sem þríþrautarkona ársins 2017. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þríþrautarkonan Guðlaug Edda Hannesdóttir hafnaði í kvöld í 18. sæti á fyrsta móti sínu á tímabilinu, Evrópubikarmóti í sprettþraut sem fram fór í Las Palmas á Kanaríeyjum.

Keppendur á mótinu voru 53. Guðlaug fer þaðan til Portúgals en næsta mót hennar fer fram í Quarteira á Algarve-ströndinni um næstu helgi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert