Setti brautarmet í Miðnæturhlaupinu

Verðlaunahafar í 10 km hlaupinu.
Verðlaunahafar í 10 km hlaupinu. Ljósmynd Anna Lilja Sigurðardóttir

Elín Edda Sigurðardóttir setti brautarmet í 10 km hlaupi kvenna í Miðnæturhlaupi Suzuki 2018 sem fór fram í gærkvöld. Þetta er í 26. sinn sem hlaupið er haldið.

Í tilkynningu kemur fram að hlauparar létu ekki rigningu og rok stoppa sig í að mæta í Laugardalinn en alls skráðu sig 2.857 til þátttöku sem er nýtt met.

Um 1.200 erlendir hlauparar voru á meðal þátttakenda frá 46 löndum. 

Verðlaunahafar kvöldsins voru eftirfarandi:

Hálft maraþon karlar

  1. Arnar Pétursson, ISL, 01:09:59
  2. Marius Skeide Ruth, NOR, 01:10:07
  3. Matthew Thomas Wilber, USA, 01:13:42

Marius Skeide Ruth frá Noregi leiddi hlaupið lengi vel en Arnar var alltaf rétt á hælunum á honum og tók svo forystuna á lokakaflanum. Tími Arnars er þriðji besti tími sem náðst hefur í hálfu maraþoni karla í þessu hlaupi.

Hálft maraþon konur

  1. Andrea Kolbeinsdóttir, ISL, 01:23:51
  2. Sigrún Sigurðardóttir, ISL, 01:31:31
  3. Anna Karen Jónsdóttir, ISL, 01:33:35

Andrea var aðeins 5 sekúndum frá því að slá brautarmetið í hálfmaraþoni kvenna en metið var sett í fyrra, 1:23:46, og það á Lisa Ring frá Svíþjóð.

Frá Miðnæturhlaupinu í gærkvöldi.
Frá Miðnæturhlaupinu í gærkvöldi. mbl.is/Árni Sæberg

10 km hlaup karla

  1. Rimvydas Alminas, LTU, 33:07
  2. Jacob Halloran, CAN, 35:56
  3. Alan Hume, GBR, 37:22

Tími Rimvydas Alminas er þriðji besti tíminn í 10 km hlaupi karla sem náðst hefur á þessari braut.

10 km hlaup kvenna

  1. Elín Edda Sigurðardóttir, ISL, 36:19
  2. Fionna Fallon, USA, 38:28
  3. Agnes Kristjánsdóttir, ISL 40:13

Elín Edda Sigurðardóttir setti nýtt og glæsilegt brautarmet í 10 km hlaupi kvenna í kvöld en gamla metið, 37:40, setti Arndís Ýr Hafþórsdóttir 2016 og jafnaði Elín Edda Sigurðardóttir það í fyrra.

5 km hlaup karla

  1. Þórólfur Ingi Þórsson, ISL, 16:20
  2. Vilhjálmur Þór Svansson, ISL, 16:28
  3. Vignir Már Lýðsson, ISL, 16:47

Þórólfur Ingi hljóp á 8.besta tímanum sem náðst hefur í 5 km hlaupi karla í þessari braut en hann á einnig 6. og 9. besta tímann.

5 km hlaup kvenna

  1. Íris Anna Skúladóttir, ISL, 19:25
  2. Vaka Njálsdóttir, ISL, 20:04
  3. Hrönn Guðmundsdóttir, ISL, 20:27

Íris Anna hljóp á 3. besta tímanum sem náðst hefur í 5 km hlaupi kvenna í þessari braut í kvöld. Sjálf á hún 2. besta tímann, 18:36.

Heildarúrslit hlaupsins má finna hér

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert