Williams upp um 153 sæti

Serena Williams hafnaði í öðru sæti á Wimbledon-mótinu.
Serena Williams hafnaði í öðru sæti á Wimbledon-mótinu. AFP

Bandaríska tenniskonan Serena Williams fór upp um 153 sæti á heimslistanum þrátt fyrir að hún tapaði fyrir Angelique Kerber í úrslitaleik Wimbledon-mótsins um nýliðna helgi.

Willams er nú í 28. sæti listans, en hún hefur aðeins spilað fjórum sinnum á síðustu tveimur árum vegna barneigna. Á Wimbledon missti Williams af tækifæri til að vinna sitt 24. risamót, sem hefði jafnað heimsmet Marga­ret Court. 

Simona Halep frá Rúmeníu er efst á listanum, þrátt fyrir að hún féll úr leik í 32-manna úrslitum Wimbledon-mótsins og sigurvegarinn, Angelique Kerber er í fjórða sæti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert