Emil Gunnarsson sagði starfi sínu lausu sem aðalþjálfari kvennalandsliðsins í blaki og hefur Blaksamband Íslands gengið frá samkomulagi við Borja Vicente um að taka við liðinu fram yfir Smáþjóðaleikana 2019.
Samkvæmt frétt á blakfrettir.is sagði Emil upp vegna veikinda í fjölskyldunni, en hann stýrði landsliðinu í tvo mánuði eftir að Daniele Capriotti hætti.
Borja Vicente hefur stýrt Þrótti á Neskaupstað undanfarin ár. Ana Vidal verður honum innan handar, en hún hefur einnig þjálfað í Neskaupstað.