Hægt að vinna sig inn á stórmót

Íslenskum drengjum og unglingspiltum gefst tækifæri til að vinna sér inn sæti á stóru móti JDC (Junior Darts Corporation) World Cup í pílukasti sem haldið verður í Bristol dagana 14. - 16. desember 2018.

Um er að ræða drengi á aldrinum 8 - 18 ára og verður haldið mót í Reykjavík þar sem tvö sæti á JDC verða í boði. Keppt verður hjá Pílukast Félagi Reykjavíkur að Tangarhöfða 2 í Reykjavík hinn 4. nóvember. 

Sjaldgæft er að Íslendingum bjóðist tækifæri sem þetta í pílukastinu en stærsta umboðsskrifstofa pílukastara í heiminum, Modus Darts, stendur fyrir því að opna Íslendingum leið inn í mótið í Bristol. 

Allar nánari upplýsingar er að finna hér á vefsíðunni kastið.is 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert