Viðræður við Bolt sigldu í strand

Usain Bolt í leik með Central Coast Mariners.
Usain Bolt í leik með Central Coast Mariners. AFP

Usain Bolt æfir ekki með ástralska liðinu Central Coast Mariners sem stendur og svo virðist sem ekki hafi náðst samkomulag um að Bolt geri langtímasamning við félagið.

Samkvæmt því sem haft hefur verið eftir forráðamönnum félagsins í fjölmiðlum þyrfti þriðja aðila til að hjálpa til við fjármögnun samningsins.

Samningaviðræðum Bolts og félagsins mun hafa verið skipt upp í tvennt. Annars  vegar hvað greiða skuli honum fyrir að leika knattspyrnu en hins vegar hlutdeild hans í öðrum tekjum sem kunna að skapast vegna nærveru hans, svo sem auglýsingatekjum.

Usain Bolt 32 ára gamall heimsmethafi í 100 og 200 metra hlaupum. Státar hann af átta gullverðlaunum frá Ólympíuleikum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert