Júlían og Guðbjörg íþróttafólk Reykjavíkur

Borgarstjórinn Dagur B. Eggertsson, Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, Steinunn Björnsdóttir, fyrirliði …
Borgarstjórinn Dagur B. Eggertsson, Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, Steinunn Björnsdóttir, fyrirliði Fram, Júlían Jóhann Karl Jóhannsson og Ingvar Sverrisson, formaður ÍBR. Ljósmynd/ÍBR

Tilkynnt var um val á Íþróttafólki Reykjavíkur í dag. Í tilefni dagsins bauð borgarstjórinn, Dagur B. Eggertsson, til móttöku í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur.

Allt frá árinu 1979 hefur stjórn Íþróttabandalags Reykjavíkur valið Íþróttamann Reykjavíkur og var þetta því í 40. sinn sem hátíðin fór fram. Í ár voru í sjötta sinn kjörin íþróttakarl og íþróttakona Reykjavíkur auk þess sem íþróttalið ársins í Reykjavík var valið.

Íþróttakarl Reykjavíkur 2018 er kraftlyftingamaðurinn Júlían Jóhann Karl Jóhannsson úr Glímufélaginu Ármanni. Júlían tvíbætti heimsmetið í réttstöðulyftu og varð í fjórða sæti samanlagt á HM í nóvember. Hann setti einnig Íslandsmet í réttstöðulyftu og samanlögðu á mótinu. Á EM vann hann til gullverðlauna í réttstöðulyftu. Þá setti hann auk þess Evrópumet í klassískri réttstöðulyftu á árinu.

Íþróttakona Reykjavíkur 2018 er frjálsíþróttakonan Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir úr Íþróttafélagi Reykjavíkur. Guðbjörg Jóna varð Evrópumeistari unglinga í 100 m hlaupi og sigraði á Ólympíuleikum ungmenna í 200 m hlaupi á árinu og sett nýtt Íslandsmet í greininni á sama móti í þremur unglingaflokkum og fullorðinsflokki. Hún vann einnig til bronsverðlauna á Evrópumeistaramóti unglinga í 200 m hlaupi og setti nýtt Íslandsmet í greininni á sama móti. Hún er í 2. sæti á Evrópulista unglinga og 12. sæti á heimlista unglinga í 200 m hlaupi.

Íþróttalið Reykjavíkur 2018 er lið Fram í handknattleik kvenna sem varð bæði Íslands- og bikarmeistari á árinu.

Tólf einstaklingar og fjórtán lið frá fjórtán félögum voru verðlaunuð fyrir frábæran árangur á árinu 2018 í dag. Íþróttafólkið og íþróttafélögin sem að liðunum standa fengu bæði áletraða verðlaunagripi og peningastyrk í verðlaun. Íþróttabandalag Reykjavíkur og íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur veittu styrkina.

 Liðin sem fengu verðlaun fyrir árangurinn á árinu 2018:

  • Fram - Íslands- og bikarmeistarar kvenna í handknattleik
  • Fylkir - Íslandsmeistarar í kumite
  • GR - Íslandsmeistarar kvennaliða í golfi
  • ÍR - bikarmeistarar í frjálsíþróttum
  • ÍR - Íslands- og bikarmeistarar í karlaflokki í keilu
  • Júdófélag Reykjavíkur - bikarmeistarar í sveitakeppni karla
  • Keilufélag Reykjavíkur - Íslands- og bikarmeistarar kvenna í keilu
  • KR - Íslandsmeistarar í körfuknattleik karla
  • KR - Íslandsmeistarar í liðakeppni kvenna í borðtennis
  • Skylmingafélag Reykjavíkur - Íslandsmeistarar liðakeppni karla
  • TBR - Íslandsmeistarar í liðakeppni í badminton
  • Valur - Íslandsmeistarar í knattspyrnu karla
  • Víkingur - Íslands- og bikarmeistarar í borðtennis
  • Þórshamar - Íslandsmeistarar karla í kata              

 Einstaklingarnir sem fengu verðlaun fyrir árangurinn á árinu 2018:

  • Aníta Hinriksdóttir, frjálsíþróttadeild ÍR
  • Ásgeir Sigurgeirsson, Skotfélagi Reykjavíkur
  • Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir, frjálsíþróttadeild ÍR
  • Birkir Már Sævarsson, knattspyrnudeild Vals
  • Freydís Halla Einarsdóttir, skíðadeild Ármanns
  • Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, frjálsíþróttadeild ÍR
  • Guðlaug Edda Hannesdóttir, þríþrautardeild Ægis
  • Guðni Valur Guðnason, frjálsíþróttadeild ÍR
  • Haraldur Franklín Magnús, Golfklúbbi Reykjavíkur
  • Júlían Jóhann Karl Jóhannsson, kraftlyftingadeild Ármanns
  • Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Golfklúbbi Reykjavíkur
  • Sveinbjörn Iura, júdódeild Ármanns
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert