Íshokkífólkið Jóhann Már Leifsson og Silvía Rán Björgvinsdóttir voru í gær verðlaunuð af Skautafélagi Akureyrar fyrir að vera kosin íshokkímaður- og kona ársins af Íshokkísambandinu fyrir helgi, en þau leika bæði með félaginu.
Fengu þau verðlaunin afhent fyrir leik SA og SR í Hertz-deild karla í gærkvöldi. Jóhann og Silvía eru mikilvægir hlekkir í landsliðum Íslands og algjörir lykilmenn hjá Skautafélagi Akureyrar.