„Frábær dagur fyrir norska knattspyrnu,“ segir Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, á Twitter-síðu sinni í kvöld vegna frétta af því að landi hennar Ole Gunnar Solskjær verði næsti knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Manchester United.
„Gangi þér vel við að hafa stjórn á Rauðu djöflunum,“ bætir forsætisráðherrann við.
Great day for Norwegian football. Good luck keeping control of the Red Devils, @ olegs26_ole
— Erna Solberg (@erna_solberg) December 18, 2018