Hulda og Viktor best á Akureyri

Hulda B. Waage og Viktor Samúelsson með viðurkenningar sínar í …
Hulda B. Waage og Viktor Samúelsson með viðurkenningar sínar í kvöld. Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason

Kraftlyftingafólkið Hulda B. Waage og Viktor Samúelsson voru í kvöld útnefnd íþróttakona og íþróttakarl Akureyrar 2018. Valið var kunngjört við hátíðlega athöfn í menningarhúsinu Hofi.

Þetta var í 40. skipti sem íþróttamaður Akureyrar er heiðraður. Alls hlutu 13 íþróttakonur og 15 íþróttakarlar úr röðum aðildarfélaga Íþróttabandalags Akureyrar, ÍBA, atkvæði til kjörsins. Á athöfninni veitti frístundaráð viðurkenningar fyrir Íslandsmeistaratitla og sérstakar heiðursviðurkenningar auk þess sem Afrekssjóður Akureyrarbæjar veitti afreksstyrki og aðildarfélögum styrki fyrir landsliðsmenn.

Íþróttakona Akureyrar 2018 var kjörin Hulda B. Waage úr Kraftlyftingafélagi Akureyrar. Hulda hefur sett fjölmörg Íslandsmet á árinu. Hennar besti árangur 2018: 230,0 kg í hnébeygju, 147,5 kg í bekkpressu, 180 kg í réttstöðulyftu og 550 kg í samanlögðu.

Helstu afrek á árinu:
– Íslandsmeistari kvenna í kraftlyftingum
– Íslandsmeistari kvenna í bekkpressu
– Bikarmeistari kvenna í kraftlyftingum
– Bikarmeistari kvenna í bekkpressu
– Kraftlyftingakona ársins 2018 
– Stigahæsta kraftlyftingakona ársins 2018
– Stigahæsta kona ársins í samanlögðu, bekkpressu og hnébeygju
– 8.sæti í -84 kg flokki á EM í kraftlyftingum
– 4.sæti í -84 kg flokki á Western European Championship í kraftlyftingum
– 19. sæti í -84 kg flokki á heimslista Alþjóðlega kraftlyftingasambandsins 
– 12. sæti á Evrópulista Evrópska kraftlyftingasambandsins 2018
– Stigahæsta kraftlyftingakona Íslands frá upphafi

Í öðru sæti varð Silvía Rán Björgvinsdóttir, hokkíkona úr Skautafélagi Akureyrar, og í þriðja sæti varð Martha Hermannsdóttir, handknattleikskona úr KA/Þór.

Íþróttakarl Akureyrar 2018 var kjörinn Viktor Samúelsson úr Kraftlyftingafélagi Akureyrar. Viktor hefur sett fjölmörg Íslandsmet á árinu. Hans besti árangur 2018: 387,5 kg í hnébeygju, 307,5 kg í bekkpressu og 322,5 kg í réttstöðulyftu. 1.010 kg í samanlögðu.

Helstu afrek á árinu:
– Íslandsmeistari karla í kraftlyftingum
– Íslandsmeistari karla í bekkpressu
– Stigahæsti kraftlyftingamaður ársins 2018
– Stigahæsti karl ársins í samanlögðu, bekkpressu og hnébeygju
– 4. sæti í -120 kg flokki á EM í kraftlyftingum
– 3. sæti í -120 kg flokki á Western European Championship í kraftlyftingum
– 8. sæti í -120 kg flokki á HM í kraftlyftingum
– 8. sæti í -120 kg flokki á heimslista Alþjóðlega kraftlyftingasambandsins – 4 sæti á Evrópulista evrópska Kraftlyftingasambandsins 2018
– Stigahæsti kraftlyftingamaður Íslands frá upphafi.

Í öðru sæti varð Filip Szewczyk blakmaður úr KA og í þriðja sæti varð Alexander Hinriksson júdómaður úr KA.

Heiðursviðurkenningar Frístundaráðs hlutu þau Árni Óðinsson fv. formaður Þórs og Hrefna G. Torfadóttir fv. formaður KA, bæði fyrir mikið og óeigingjarn starf í þágu íþrótta- og félagsmála á Akureyri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert